Styrkur til náms, verkfæra og tækjakaupa 2021

Byggðasamlaginu er heimilt að veita styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda telst námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðu fólki að skapa sér atvinnu.

Umsóknafrestur er til 11. desember 2021 og skulu umsóknir berast til félagsþjónustu lögheimilisveitarfélags, umsóknaeyðublöð og reglur um styrki vegna námskostnaðar eða verkfæra- og tækjakaupa eru að finna hjá viðkomandi félagsþjónustu eða hér inni.

bsvest.is 

• Félagsþjónusta Bolungarvíkur, Aðalstræti 12, 415 Bolungarvík, sími 450-7000/ 450-5900 www.bolungarvik.is
• Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar, Hafnarstræti 1, 400 Ísafjörður, sími 450-8000 https://www.isafjordur.is/ www.sudavik.is
• Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps, Höfðagötu 3, 510 Hólmavík, sími 451-3510/ 434-7880. www.strandabyggd.is / www.reykholar.is
• Félagsþjónusta Vestur- Barðastrandarsýslu, Aðalstræti 75, 450 Patreksfjörður, sími 450 – 2300/ 456-2539 www.vesturbyggd.is / www.talknafjordur.is